Ný síða:
www.syngjum.com
Sett inn 14:15 af Flis
________________________________________________
Máltíð frá nýrækt undir Jakob frá Árbæ!
Máltíð er fylfull en ég kíkti á hana niðrí stóði í gær. Hún lítur út eins og handbolti sem búið er að stinga 4 tannstönglum í. Máltíð er með fyl undan Jakobi frá Árbæ, eins og það hljómar nú asnalega! 
En hér er gömul færsla sem ég gerði um Máltíð:
Daginn eftir að ég fermdist, þá fór ég að keppa í Ólafsvík á hestamannamóti. Hestarnir voru fluttir með frænda mínum sem átti hestaflutingabíl (sem pabbi síðan keypti). Ég sat inn í bíl með frænda mínum þegar hann bauð pabba helminginn af folaldi sem merin hans hafði kastað deginum áður, s.s. á fermingardaginn minn. Planið var að slátra því um haustið og skipta skrokknum 50/50. Folaldið var slysafolald enda var merin ekki nema 2ja vetra þegar hún kastaði. Þar sem ég var nýbúinn að fermast átti ég pening og ákvað að spyrjast fyrir um hvað hann myndi vilja fá fyrir folaldið. Hann var ekki alveg að trúa mér fyrst og sagði tölu sem ég var ekki alveg sáttur við. Þá kastaði ég á móti 15.000 kall og reiðskó á pabba. Þessu var tekið af báðum aðilum og upp úr krafsinu eignaðist ég folaldið.
Fyrsta verkefnið mitt var síðan að skýra folaldið (sem var meiri). Það komu nokkur sæt nöfn upp í hugann, en ég hins vegar sem praktískur maður ákvað að skíra hana eðli máls samkvæmt Máltíð og við hæfi að kenna hana við Nýrækt (sem er kjarr fyrir utan Stykkishólm) þar sem hún sá sitt fyrsta ljós þar.
Máltíð er slysafolald eins og áður sagði og er ekki vitað enn undan hvaða hesti hún er. Hins vegar lágu hæfileikarnir ekki á sér, og strax í upphafi fór hún að hreyfa sig af stakri snilld. Ég var að vinna í dölunum sumarið eftir við að temja og fékk upp úr því að hafa hana þar í fóstri næstu árin. Hún bar af þar á bæ í hreyfingum þó svo að útlitið hafi ekki alveg verið með henni.
Ég flutti úr Stykkishólmi eftir 10. bekkinn og flutti ég Máltíð þá með mér niðrá Árbæ (s.s. sveitina hjá Hellu). Ég tamdi hana síðan þegar hún var á 5 vetri þar sem ég vildi ekki byrja á henni fyrr því hún var svo lítil greyið.
Hér fyrir neðan er síðan mynd af Máltið eftir að ég var búinn að temja/þjálfa hana í ca. 3 mánuði. Lárus bróðir er á henni (hann á einmitt helminginn í henni í dag) og það segir sitt með gæðin ef hann getur látið hana líta vel út!

Frábær hestur, með frábært geðslag og einstakan persónuleika. Ég held að þetta hafi verið bestu kaupin sem ég hef gert hingað til í nokkru sem ég hef farið út í.
Og þá veistu það! 
vissir þú að... íslenski jarðakanastofninn einstakur stofn og er latneska heitið á honum kennt við landið.
Sett inn 12:03 af Flis
________________________________________________
Karlar betri en konur í skák?
Sett inn 08:56 af Flis
________________________________________________
Sett inn 00:16 af Flis
________________________________________________
Loksins frumvarp til breytinga á barnalögum!
LOKSINS!
Fólki með sameiginlega forsjá (átt er við þann sem lögheimilið er hjá) er í dag ekki bannað (þ.e. í það minnsta samkvæmt túlkun á því ákvæði samkv. dómsmálaráðuneytinu) að flytja með barn t.d. úr Reykjavík og á Langanes en það er hins vegar bannað að flytja með það t.d. til Danmerkur, þó svo að það er auðveldara að komast til Danmerkur heldur en út á Langanes. Þ.e. það þarf ekki samþykki þess sem lögheimilið er ekki hjá til að mega flytja lögheimli innanlands, heldur aðeins ef flytja á barnið út.
Í sameiginlegri forsjá þarf samþykki beggja foreldra að koma til varðandi allar meiriháttar ákvarðanir sem varða persónulega hagi barnsins. Að sjálfsögðu ætti að falla undir þetta að flytja með barnið milli landssvæða innanlands.
Í dag var Dögg að setja fram frumvarp sem á að koma í veg fyrir að þegar aðilar eru með sameiginlega forsjá að það foreldri sem lögheimilð (jafnan föst búseta) er hjá getur ekki flutt lögheimili barnsins innanlands nema með samþykki hins.
Setninginn sem á að koma inn hljóðar svo:
"Nú fara foreldrar sameiginlega með forsjá barns og er foreldrinu sem barnið á lögheimili hjá þá óheimilt að flytja lögheimili barnsins án samþykkis hins."
Þess vegna byrjaði ég á þennan póst á LOKSINS!
Þetta er eitthvað sem klárlega á að vera til staðar í lögunum!
Einnig er athyglisvert að í þessu frumvarpi er verið að breyta því að ef barn er feðrað er í dag ekki hægt að fara í faðernismál hjá utanaðkomandi aðila.
Segjum sem svo að ég hafi sofið hjá stelpu í hitt í fyrra og hún hafi verið og væri og er gift (barn feðrast sjálfkrafa). Vinkona hennar kæmi til mín núna og segði við mig að ég ætti örugglega barnið sem hún eignaðist 9 mánuðum eftir að við fórum alla leið, þá gæti ég ekki farið í mál til að fá úr því skorið hvort ég eigi barnið eða ekki í dag.
Í þessu sama frumvarpi er verið að breyta þessu eins og sést með 1. gr. frumvarpsins:
"1. gr. Orðin „enda hafi barnið ekki verið feðrað" í 1. mgr. 10. gr. laganna falla brott."
Frumvarpið getur þú séð hér í heild sinni.
Flott framtak og ég skora á alla í þessari umræðu að hrópa þetta frumvarp í gegn. Sérstaklega vil ég sjá 2. gr. inn þar sem hún snýr mjög náið að mér! 
vissir þú að... stari verpir stundum tvisvar á sumri
Sett inn 18:10 af Flis
________________________________________________
Lið Lögréttu varð Beerfest meistari Háskólans í Reykjavík 2007.
Ég fór fyrir liðinu sem fyrirliði þó svo að ég sé og hafi ekki verið kallaður mikill drykkjumaður hingað til. Maður fór þetta bara á karlmennskunni! 

Sigurlið Beerfest 2007
vissir þú að... á Íslandi verpa að staðaldri 75 tegundir fugla
Sett inn 18:55 af Flis
________________________________________________