Pistill sem ég smellti á spjallborð Árborgar, www.arborgfc.net:
Konur og fótbolti.
Þó sumarið sé senn á enda þá vil ég samt koma á framfæri leiðbeiningum til leikmanna Árborgar sem eiga og munu eiga í vandræðum með að rökstyðja þann tíma sem fer í fótboltann og til að fyrirbyggja vandamál sem upp geta komið í sambandi við fótboltaiðkun þeirra.
Ég vil kalla pistilinn:
Listin að fá konur til að lifa í sátt við fótboltann!
------------------------
Punktur 1.
Til að byrja með vil ég segja að konur eru alltaf á báðum áttum með hvað þær vilja og er tilvalið þegar sú staða kemur upp, að leiða þær að því sem "þær" vilja, án þess að þær séu með á nótunum að þær séu í raun að gera það sem þú villt. Þetta er list sem krefst æfingar og þrautseigju, en það er með þetta eins og flest allt annað, þ.e. að æfingin skapar meistarann.
Æfðu þig!
------------------------
Punktur 2.
Oft þegar fólk fer að búa saman eða býr saman þá fer það að breyta hvor öðru og eru þá oft að reyna að breyta því sem það heillaðist mest af í upphafi. Fólk fer að búa til reglur og þögul samkomulög til að forðast að fara á mis við hvort annað. Það kann ekki alltaf góðu lukku að stýra.
Of harðar og ósveigjanlegar reglur, sem ekki taka mið af fjölbreytilegum aðstæðum, eru frekar til þess fallnar að brjóta niður, það sem til staðar er, í stað þess að vera uppbyggjandi.
Komdu fótboltanum út úr svoleiðis umræðum og pælingum!
------------------------
Punktur 3.
Milli kvenna er deilt um hvernig karlmenn eiga að vera. Á hann að vera harður eða mjúkur? Og þá hversu harður og hversu mjúkur?
Rannsóknir sýna að konur falla fyrir sterkum, óhefluðum karlmönnum, sérstaklega á egglostímabilinu, og sjálfsöryggi er yfirleitt efst, og alltaf ofarlega, á listanum yfir það sem konur falla fyrir í fari karlmanna. Eflaust er samt til sú kona sem vill búa með manni sem er undirlægja, en það er undantekning. En þótt það sé þægilegt að eiga hlýðinn mann, spurðu konu hve lengi hún muni haldast hrifin af undirlægju og hvort undirlægja "kveiki" í henni? Hreinskyndilegt svar hjá henni væri: "Ekki lengi og nei!" Þarna eru komin rök fyrir að standa á sínu.
Ekki beygja þig með fótboltann!
------------------------
Punktur 4.
Stundum getur verið að konum standi ógn af þeim tíma sem fer í fótboltaiðkun Árborgarmanna. Þessi ógn er í raun óöryggi og/eða eigingirni. Þú getur bent konu þinni á að þegar maður nálgast aðstæður öðruvísi getur útkoman orðið betri. Þegar umræðan er alltaf hve fótboltinn er neikvæður, í þessu tilviki gangvart konunni, verður hætt við að sumar *hóst allar* konur líti á sig sem fórnarlömb og fara þar með að nálgast aðstæðurnar af veikleika en ekki styrkleika og þegar maður nálgast aðstæður af veikleika verður maður oftar en ekki undir.
Konur hafa sitt og karlar sitt. Fótbolti er þitt. Hún getur fengið að vera með, svona utanfrá, en aldrei alla leið. Hún þarf að sætta sig við það. Stundum getur verið að þær skilji ekki inntak þess að spila með Árborg. Þær kannski segja: "Þetta er bara fótbolti!" Þá veistu að þær vita ekkert hvað þær eru að tala um. Ef eitthvað í líkingu við þetta kemur upp á veistu hvað er í gangi.
Ekki láta þær stjórna umræðunni!
------------------------
Punktur 5.
Síðan kemur oftar en ekki upp hjá konum þetta klassíska: "Það er mikið erfiðara að vera kona en karl!" Þá er oft átt við hversu mikið þar að gera á heimilinu lendir á henni, þú gerir aldrei neitt, þú þarft að gera þetta og hitt. Hún er að gera þér kunnugt um hvað það sé mikið erfiðara að vera kona en karl. Gott og vel. Bentu henni á nokkrar staðreyndir.
Ef maður skoðar tölur um hlutskipti karla og kvenna þá virðast konur hafa mun betri stöðu en karlar. Í fyrsta lagi eru það lífslíkur, en konur hafa 5 árum lengri lífslíkur en karlar. Í öðru lagi ef þú skoðar tíðni sjálfsmorða þá kemur í ljós að þeim sem stytta sér aldur þá eru það 85% karlar og 15% konur. Í þriðja lagi ef þú skoðar hverjir sitja í fangelsum þá eru það 95% karlar og 5% konur. Í fjórða lagi ef maður lítur á þá sem eru á meðferðastofnunum vegna ofneyslu fíkniefna eða áfengis þá eru það hlutskiptin um 80% karlar og 20% konur. Síðan er nokkuð athyglivert að það eru mun fleiri karlar sem láta breyta sér í konur en konur sem láta breyta sér í karla, það er s.s. eftirsóttara að vilja að vera kona!
Þannig að ef þú lítur á þessa mælikvarða sem þú getur lagt á hamingju eða gott hlutskipti í lífinu, eins og lífslíkur, að þú leiðist ekki út í glæpi, að þú leiðist ekki út í fíkniefnaneyslu, styttir þér ekki aldur, "halda eigin kyni" o.s.frv. þá kemur í ljós að konur virðast búa við miklu betra hlutskipti en karlar, með öðrum orðum:
Það er mikið auðveldara að vera kona en karl!
------------------------
Punktur 6.
Mundu að þú ert karlmaður (þú ert engin undantekning hvort sem þú trúir því eða ekki) og að karlmenn eru eins og spýta, hún bognar og brotnar. Hversu mikið það er, er síðan mismunandi. Konan hins vegar beygist mun frekar (fyrr), en hún á mun erfiðara með að brotna.
Þannig láttu á hana reyna!
------------------------
Lokapunktur (með engu númeri).
Ef EKKERT gengur og þú ert ráðþrota, allar umræður enda í rifrildum sem þú hefur ekki stjórn á eða þú hefur ekki náð nægilegri tækni til að nýta þér punkta fyrrgreinda punkta.
Þá skaltu ekki hætta að spila fótbolta heldur minna hana á munin á skyndikonu og alvöru konu, þ.e. að sú sem elskar þig stendur með þér í blíðu og stríðu, en skyndikona er einungis með þér í blíðu. Fótbolti er greinilega orðin stríða í þínu sambandi. Ekki hætta að spila fótbolta, þú getur bara spurt hana hvort hún sé nokkuð hóra! Þá ætti hún að átta sig á hlutunum!
Áfram Árborg!
------------------------
Gangi ykkur vel!!!
Baráttukveðja,
Jakob
Sett inn 10:57 af Flis
________________________________________________