__________________________________________________________________________________________________________MSN:  jbj6@simnet.is

Hvernig Viðrar???

Sætasta stelpan

sem ég hef séð :)

 

 

Um Mig Sjálfan

 

Hver er Jakob?

 

Hafðu samband

Sendu mér SMS

 

Er Óskar HOT?

  

______________

 

Síðulinkar

 

Síða nr. 1,2og3

EvaSigríður.com

 

Myndirs

Slútt Árborgar ´06

Menningarnótt 2006

12.ágúst - Þjappa

Trip to Ísafjörður

Þjóðhátið 2006
Hallgerisey 2006
Tipp.party maí 2006

Slútt Árborgar 2005

Þjappa Árb. 2005

Slútt Árborgar 2004

KKÁvsML,okt 2005

Tipparaparty 2005
 

Videos

Menningarnótt

Addi á Ísafirði
Már í Hallgeirsey
Valli í Hallgeirsey

 

Bloggs

4seti

Andrea

Babú

Bakarans
Bogga

Browny

Búni

Bæring Bró.

Emilia

Fjóla siss F.F.

Gummi Kalli

Ingigerður

Jóhanna F.F.

Jörgs Fr.

Kristín

Kvennsamir

Lárus Bró. og fl.

Leifur V

Ninnan

Simpansi

SLÚÐUR

SvaBja

Trausti Jó og co.

 

HR

Berta

Eyrún og co.
Gauji

Harpa

Heiða

jus girls go crazy

Kristín

lagaljoskur

Sigrún

Þórunnin

 

Must go there

Árborg FC
Hnohni

 

 

Ættarmót  2006

Ættarmót í Flatey

 

Dundur

fotbolti.net

Arsenal.is
Gras.is
Batman
Tilveran
Kbbanki
Bilasolur
Google
Leit.is
Djamm.is
Hugi

Vaktin

 

______________

 

Ritverk

 

Pistlar

Þjóðarfugl Íslands

 

Ritgerðir

Staða reglugerða við afnám eða breitingu á lögum

 

______________

 

Leikir

Meiri leikir

Billiard

Skák

Körfuleikur

 

Dundleikir

Pakkmann

Skjóta litaðar kúlur

Skoppandi kúluskot

 

Þessi gamli góði

Bubble Trouble

 

 

Ef þú villt fá póst í hvert skipti sem ég pósta skáraðu þá mailið þitt:

 

Hversu margir hafa verið á síðunni síðustu þrjár mínúturna

 


 

Corti Slim

 


 


ha??? NEI!!! ÉG???

October 23, 2007

Feministar og lög um orlof húsmæðra!

Nú rétt í þessu var ég að leita í lagabálkum að framfærslu og var að renna yfir niðurstöðunar, þegar ég rekst á lög um orlof húsmæðra. Nú á tímum háværrar umræðu um jafnrétti, af hverju eru þessi lög enn í gildi?

Ég trúi á einstaklingshyggju og legg mitt traust á mat hvers og eins einstaklings til að t.d. ráða í vinnu þann aðila sem þeir telja henta sér best. Ég tel persónulega að vinnuveitandi eigi að fá að ráða hvaða starfsmann hann eigi að velja, hvort sem það er kona eða karl, hann myndi sennilega ráða þann sem hæfari er til starfans. Það að ætla að neyða hann í nafni jafnréttis með lögum eða öðrum aðgerðum er ekki jafnrétti, það er eitthvað allt annað. Það sama gildir um önnur lög sem undanskylja ákveðinn hóp manna, sbr. fyrrnefnd lög.

Samkvæmt fyrrnefndum lögum um orfof húsmæðra hefur sérhver kona, sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu, án launagreiðslu fyrir það starf, á rétt á að sækja um orlof. Þá leggja sveitastjórnir 100 kr. á hvern íbúa sveitafélagsins til þess að standa straum af kostnaði við orlof húsmæðra.

Kvenfélagasamband Íslands er síðan gefið það hlutverk í lögunum að skipta landinu í orlofssvæði með tilliti til framkvæmdar laganna um orlof húsmæðra. Fer skiptingin fram á landsþingi sambandsins. Eru þessi lög afrakstur hugmynda um orlof húsmæðra sem kom fram árið 1955 á landsþingi Kvenfélagasambands Íslands.

Nú vænti ég þess að á landinu í dag eru fullt af heimavinnandi körlum, en kannski þurfa þeir ekkert á þessu að halda, bara konur... þeir eru jú karlmenn. 

Ef ég væri feministi, þá væri ég að berjast fyrir því að fá svona lög út.

Ég vil jafnrétti, en er klárlega ekki feministi og aðal ástæðan fyrir því að ég myndi aldrei segja að ég væri feministi er sú að þeir eru því miður mun duglegri við að fá fólk upp á móti sér í stað þess að einbeita sér meira að jafnréttisumræðunni. Mér finnst feministar ætla sér áfram á frekjunni, en finna í huga sér fyrir einhverri minnimáttarkend.

Þær konur (og karlar) sem berjast fyrir jafnrétti ættu einnig að reyna að fá svona lög úr gildi, þar sem þá væri kominn fótur fyrir því að þær væru að berjast fyrir jafnrétti en ekki vaða bara áfram eins og kerruhestar með öfgakennda Bríeti Bjarnhéðins við stjórn.

Ef ég væri kona myndi ég skammast mín fyrir þessi lög!

...en mér gæti samt ekki verið meira sama þó þessi lög séu þarna inni áfram! Smile

Lög um orlof húsmæðra


vissir þú að... flórgoðin er eini goðinn sem verpir á Íslandi.

 

Sett inn 14:11 af Flis


Comments (6)  

________________________________________________

 

October 11, 2007

JABS

 

Þetta er nýja logo-ið hjá félagi sem ég er í en ég bjó til þetta logo um daginn. 

Maður er alltaf eitt og annað að bardúksa! Wink

Varð bara að setja eitthvað hérna inn.

Hef ekki tíma til að blogga, það er m.a. próf á morgun, síðan vísó, Apefest, pabbahelgi og margt margt fleira!

p.s. ég er betri en Óskar í foosball, þó það sé ekki mikið afrek langaði mig bara að koma því að! Big Smile

Sett inn 14:19 af Flis


Comments (7)  

________________________________________________

 

September 30, 2007

APEFEST 2007 - taka tvö!

Sett inn 17:50 af Flis


Comments (4)  

________________________________________________

 

September 20, 2007

Veikur á leið til Manchester!


Ég er að fara á morgun til Manchester til að horfa á Man Utd. vs. Chelsea!

Fyrsta skipti sem ég fer út á fótboltaleik, það getur ekki verið annað en ég hressist á morgun eða hinn! Hurmph

Síðan fer ég að fara að setja nýjar myndir af Evu inn og setja heimasíðuna hennar aftur í gang. Þetta gengur alls ekki svona!

En það gerist í það minnsta ekki fyrr en eftir helgi! Wink

Góða helgi! Shades

 

Sett inn 22:48 af Flis


Comments (7)  

________________________________________________

 

August 28, 2007

Konur og fótbolti!!!

Pistill sem ég smellti á spjallborð Árborgar, www.arborgfc.net:

Konur og fótbolti.

Þó sumarið sé senn á enda þá vil ég samt koma á framfæri leiðbeiningum til leikmanna Árborgar sem eiga og munu eiga í vandræðum með að rökstyðja þann tíma sem fer í fótboltann og til að fyrirbyggja vandamál sem upp geta komið í sambandi við fótboltaiðkun þeirra.

Ég vil kalla pistilinn:

Listin að fá konur til að lifa í sátt við fótboltann!


------------------------



Punktur 1.
Til að byrja með vil ég segja að konur eru alltaf á báðum áttum með hvað þær vilja og er tilvalið þegar sú staða kemur upp, að leiða þær að því sem "þær" vilja, án þess að þær séu með á nótunum að þær séu í raun að gera það sem þú villt. Þetta er list sem krefst æfingar og þrautseigju, en það er með þetta eins og flest allt annað, þ.e. að æfingin skapar meistarann.

Æfðu þig!


------------------------



Punktur 2.
Oft þegar fólk fer að búa saman eða býr saman þá fer það að breyta hvor öðru og eru þá oft að reyna að breyta því sem það heillaðist mest af í upphafi. Fólk fer að búa til reglur og þögul samkomulög til að forðast að fara á mis við hvort annað. Það kann ekki alltaf góðu lukku að stýra.

Of harðar og ósveigjanlegar reglur, sem ekki taka mið af fjölbreytilegum aðstæðum, eru frekar til þess fallnar að brjóta niður, það sem til staðar er, í stað þess að vera uppbyggjandi.


Komdu fótboltanum út úr svoleiðis umræðum og pælingum!


------------------------



Punktur 3.
Milli kvenna er deilt um hvernig karlmenn eiga að vera. Á hann að vera harður eða mjúkur? Og þá hversu harður og hversu mjúkur?

Rannsóknir sýna að konur falla fyrir sterkum, óhefluðum karlmönnum, sérstaklega á egglostímabilinu, og sjálfsöryggi er yfirleitt efst, og alltaf ofarlega, á listanum yfir það sem konur falla fyrir í fari karlmanna. Eflaust er samt til sú kona sem vill búa með manni sem er undirlægja, en það er undantekning. En þótt það sé þægilegt að eiga hlýðinn mann, spurðu konu hve lengi hún muni haldast hrifin af undirlægju og hvort undirlægja "kveiki" í henni? Hreinskyndilegt svar hjá henni væri: "Ekki lengi og nei!" Þarna eru komin rök fyrir að standa á sínu.


Ekki beygja þig með fótboltann!


------------------------



Punktur 4.
Stundum getur verið að konum standi ógn af þeim tíma sem fer í fótboltaiðkun Árborgarmanna. Þessi ógn er í raun óöryggi og/eða eigingirni. Þú getur bent konu þinni á að þegar maður nálgast aðstæður öðruvísi getur útkoman orðið betri. Þegar umræðan er alltaf hve fótboltinn er neikvæður, í þessu tilviki gangvart konunni, verður hætt við að sumar *hóst allar* konur líti á sig sem fórnarlömb og fara þar með að nálgast aðstæðurnar af veikleika en ekki styrkleika og þegar maður nálgast aðstæður af veikleika verður maður oftar en ekki undir.

Konur hafa sitt og karlar sitt. Fótbolti er þitt. Hún getur fengið að vera með, svona utanfrá, en aldrei alla leið. Hún þarf að sætta sig við það. Stundum getur verið að þær skilji ekki inntak þess að spila með Árborg. Þær kannski segja: "Þetta er bara fótbolti!" Þá veistu að þær vita ekkert hvað þær eru að tala um. Ef eitthvað í líkingu við þetta kemur upp á veistu hvað er í gangi.


Ekki láta þær stjórna umræðunni!


------------------------



Punktur 5.
Síðan kemur oftar en ekki upp hjá konum þetta klassíska: "Það er mikið erfiðara að vera kona en karl!" Þá er oft átt við hversu mikið þar að gera á heimilinu lendir á henni, þú gerir aldrei neitt, þú þarft að gera þetta og hitt. Hún er að gera þér kunnugt um hvað það sé mikið erfiðara að vera kona en karl. Gott og vel. Bentu henni á nokkrar staðreyndir.

Ef maður skoðar tölur um hlutskipti karla og kvenna þá virðast konur hafa mun betri stöðu en karlar. Í fyrsta lagi eru það lífslíkur, en konur hafa 5 árum lengri lífslíkur en karlar. Í öðru lagi ef þú skoðar tíðni sjálfsmorða þá kemur í ljós að þeim sem stytta sér aldur þá eru það 85% karlar og 15% konur. Í þriðja lagi ef þú skoðar hverjir sitja í fangelsum þá eru það 95% karlar og 5% konur. Í fjórða lagi ef maður lítur á þá sem eru á meðferðastofnunum vegna ofneyslu fíkniefna eða áfengis þá eru það hlutskiptin um 80% karlar og 20% konur. Síðan er nokkuð athyglivert að það eru mun fleiri karlar sem láta breyta sér í konur en konur sem láta breyta sér í karla, það er s.s. eftirsóttara að vilja að vera kona!

Þannig að ef þú lítur á þessa mælikvarða sem þú getur lagt á hamingju eða gott hlutskipti í lífinu, eins og lífslíkur, að þú leiðist ekki út í glæpi, að þú leiðist ekki út í fíkniefnaneyslu, styttir þér ekki aldur, "halda eigin kyni" o.s.frv. þá kemur í ljós að konur virðast búa við miklu betra hlutskipti en karlar, með öðrum orðum:


Það er mikið auðveldara að vera kona en karl!


------------------------



Punktur 6.
Mundu að þú ert karlmaður (þú ert engin undantekning hvort sem þú trúir því eða ekki) og að karlmenn eru eins og spýta, hún bognar og brotnar. Hversu mikið það er, er síðan mismunandi. Konan hins vegar beygist mun frekar (fyrr), en hún á mun erfiðara með að brotna.

Þannig láttu á hana reyna!


------------------------



Lokapunktur (með engu númeri).
Ef EKKERT gengur og þú ert ráðþrota, allar umræður enda í rifrildum sem þú hefur ekki stjórn á eða þú hefur ekki náð nægilegri tækni til að nýta þér punkta fyrrgreinda punkta.

Þá skaltu ekki hætta að spila fótbolta heldur minna hana á munin á skyndikonu og alvöru konu, þ.e. að sú sem elskar þig stendur með þér í blíðu og stríðu, en skyndikona er einungis með þér í blíðu. Fótbolti er greinilega orðin stríða í þínu sambandi. Ekki hætta að spila fótbolta, þú getur bara spurt hana hvort hún sé nokkuð hóra! Þá ætti hún að átta sig á hlutunum!


Áfram Árborg!


------------------------




Gangi ykkur vel!!!

Baráttukveðja,
Jakob

Sett inn 10:57 af Flis


Villtu Commentera?  

________________________________________________

 

August 27, 2007

Tuborg útilegan

Elli í Tuborg útilegunni:

Sett inn 21:08 af Flis


Villtu Commentera?  

________________________________________________

 

Previous Page

Next Page

 

 

________________________________________________________________________________661-1191

 

 

 

eXTReMe Tracker

site hit counter