Bara 2 comment
| ÓG June 3, 2008 05:19 PM PDT Innilega til hamingju með það Jakob minn kæri. En segðu mér, hvert er latneska heitið á jarðakanastofninum, þú tekur það ekki fram? | ||
| JJ July 31, 2008 01:09 PM PDT Heyrðu... það mun vera: Limosa limosa islandica! ;) | ||
| Leave a Comment: |
|
Máltíð er fylfull en ég kíkti á hana niðrí stóði í gær. Hún lítur út eins og handbolti sem búið er að stinga 4 tannstönglum í. Máltíð er með fyl undan Jakobi frá Árbæ, eins og það hljómar nú asnalega! En hér er gömul færsla sem ég gerði um Máltíð: Daginn eftir að ég fermdist, þá fór ég að keppa í Ólafsvík á hestamannamóti. Hestarnir voru fluttir með frænda mínum sem átti hestaflutingabíl (sem pabbi síðan keypti). Ég sat inn í bíl með frænda mínum þegar hann bauð pabba helminginn af folaldi sem merin hans hafði kastað deginum áður, s.s. á fermingardaginn minn. Planið var að slátra því um haustið og skipta skrokknum 50/50. Folaldið var slysafolald enda var merin ekki nema 2ja vetra þegar hún kastaði. Þar sem ég var nýbúinn að fermast átti ég pening og ákvað að spyrjast fyrir um hvað hann myndi vilja fá fyrir folaldið. Hann var ekki alveg að trúa mér fyrst og sagði tölu sem ég var ekki alveg sáttur við. Þá kastaði ég á móti 15.000 kall og reiðskó á pabba. Þessu var tekið af báðum aðilum og upp úr krafsinu eignaðist ég folaldið.
Frábær hestur, með frábært geðslag og einstakan persónuleika. Ég held að þetta hafi verið bestu kaupin sem ég hef gert hingað til í nokkru sem ég hef farið út í. vissir þú að... íslenski jarðakanastofninn einstakur stofn og er latneska heitið á honum kennt við landið. |